Sonur minn er föðurlaus, að vísu er sá maður ekki látin mér vitanlega heldur kaus hann að fara frá því hlutverki sem fylgir því að ala upp barn, semsagt það hlutverk sem flest okkar kannast við ..að vera foreldri.
Að sjálfsögðu er það gríðarlega mikil ábyrgð sem fylgir því að eignast lítið barn en það þýðir samt ekki að maður sé að mökksvitna á daginn með kvíðahnút í maganum yfir því ef barnið skyldi nú detta af hjólinu, ef ég skyldi óvart setja hann í götóttann sokk áður en ferðini væri haldið í leikskólann á morgnana og fá stimpil á ennið sem óhæf móðir.
Það er engin að ætlast til að maður sé fullkomin! Ég veit ekki hversu marga morgna ég hef óvart næstum því gleymt barninu mínu í ganginum á meðan ég puðast við að loka útidyrahurðini, 10 mínútum of sein í vinnuna og ekki búin að fá dropa af koffíni til að keyra mig í gang. Þá heyrist lítið bank að innan "mamma hvaðda geera ?"
Að sjálfsögðu skammast maður sín og lítur í kringum sig eins og glæponí með þvílíka von að engin vitni sáu þennann skelfilega atburð sem átti sér stað en þegar maður lítur til baka þá er einfaldlega ekki annað hægt en að brosa.
Allar búðaferðirnar sem enduðu á því að maður var útsníttur af hori og tárum vegna þess eins að ekki var í boði að eignast þetta svakalega flotta hlaupahjól sem er stillt upp beint á móti búðakössunum, loksins allar matvörudeildirnar farnar að baki og maður telur sig vera algjörlega safe frá freistingunum þegar komið er að útganginum.. en þá byrjar ballið og þar með hverfur allur lífsviljinn sem var fyrir hendi í byrjun.
Fyrir mig er þetta allt saman skemmtilegar minningar eða eins og ég kalla það "smá krydd í tilveruna" og ég hef unun af því að segja sögurnar þegar hann reyndi að sturta kettinum niður klósettið og svo lengi má telja! Allt þetta gerir lífið einfaldlega skemmtilegra og meir spennandi, lífið á ekki að vera of fyrirsjáanlegt. Það er nú nokkuð gaman að lenda í ævintýrum og kjánalegum uppákomum af og til, gerir mann unglegri og hraustari þar fyrir vikið þ.e.a.s ef maður þarf að hlaupa á harðaspani allt Hagkaup því barnið klifraði úr innkaupakerruni á einni sekúndu þegar maður rétt svo kíkti á útsöluvörur og bara með því einu var barnið týnt.
Það er hægt að læra heilmikið af börnunum, á því tímabili áður en ég eignaðist son minn þá var ég afskaplega óþolinmóð og þoldi nánast enga bið, ég tók svefninum sem sjálfsögðum hlut og vakti ýmist allar nætur, eyddi peningnum mínum í fullt af dóti og fötum sem ég hafði oftast engin not fyrir og svo lengi má telja.
Núna í dag, þá fagna ég þegar hann ákveður að vakna klukkan átta í staðin fyrir sjö um helgar og hvað þolinmæði snertir, þá hefur mín aukist til muna þar sem litli gutti er rétt skriðin yfir terrible two og er byrjaður á því þriðja.....
Þetta er ekki alltaf dans á rósum og það hefur engin talað um foreldrahlutverkið heldur þannig, suma daga er maður úthvíldur og uppeldið gengur vel, háttatíminn gengur eins og í sögu og uppvaskið né þvotturinn safnast ekki upp í eina hrúgu. Svo koma dagar sem krílið manns breytist í óalandi dýr á heimilinu og harðneitar að fara sofa þrátt fyrir að líta út eins og krumpaður strumpur í framan af þreytu, enn indælt er það...svona í minninguni þegar maður horfir á hann loksins sofa en alls ekki einmitt í miðju baráttustríði við það að vinna þrætuna á heimilinu um hver ræður í raun og veru. Ég er að segja ykkur það....alls ekkert grín að standa í rökræðum við barnið sitt og í ófá skipti hef ég heyrt að það gagnast ekki neitt.
Samt stendur maður þarna með öll gráu hárin sín, strax farin að syrgja kvöldið sitt sem maður ætlaði að nota í að gera nákvæmlega ekki neitt.
En hvað get ég sagt...foreldrahlutverkið er yndislegt, engin orð geta lýst því nógu vel hve þakklát ég er að eiga barnið mitt.
Þrátt fyrir mislukkaðar uppeldisaðferðir sem skjóta upp kollinum af og til að þá skiptir það engu máli. Við finnum útúr þessu sjálf og sú aðferð virkar í flestum tilfellum :)
Ég er einfaldlega mjög þakklát fyrir að vera mannleg í foreldrahlutverkinu og að taka sjálfa mig ekki of hátíðlega, því þegar botninn er á hvolft....ef barnið þitt brosir,hlær og er hamingjusamt þá veistu fyrir víst að þú ert að gera allavega eitthvað rétt! :) prakkarastrikin eru bestu minningarnar og sögurnar fyrir okkur í ellini til að segja barnabörnunum.
