Sunday, August 19, 2012

Lífið er stutt,njótum þess!








Dagarnir eru svo fljótir að líða og áður en maður veit af þá eru liðnar vikur,mánuðir og loks ár, aðeins á þessum stutta tíma sem maður gleymdi sér á vit ævintýra og ásta, gleði og sorgar jafnt sem að dagdreyma og þrá...eru komnar minningar, margar minningar sem ylja manni um hjartarætur, vekja upp gamalt bros og þakklæti yfir því að allir þessir hlutir gerðust.
Ég er ekki að tala um stór kraftaverk eins og að vakna einn morgunin og sjá fyrir framan sig uppáhalds bílategundina á bílaplaninu merkta nafni mínu, ég þekki ekki mikið til bíla svo það yrði eflaust rauð og krúttleg bjalla!, að hreppa góðan vinning í lottóinu sem gerir það kleift að þurfa ekki að hafa áhyggjur af peningum næstu mánuðina, að eignast stærri íbúð svo Oliver geti fengið sérherbergi, að eignast fullkomin eiginmann og svo framvegis!....

Þetta eru ekki beint hlutirnir sem eru nauðsynlegir né beinlínis góðir fyrir mann!

Allavega er mín skoðun þannig að þegar ég verð orðin gömul og grá, sit í ruggustól á veröndini heima hjá mér og hugsanirnar um fortíðina taka mig á flug, þá mun ég minnast fjölskyldunnar og vina, allar gleðistundirnar og hlátrasköllinn, fallegu brosin hjá börnunum mínum, tilfinninguna hve yndislega gott það var að leggjast uppí rúm þegar allir höfðu náð að sofna og ég nýbúin að brjóta saman þvott rétt áður en ég lagðist til hvíldar, óvæntra og klístraða kossa, skemmtilegu ferðirnar útá róló í rigningu og roki. Allir þeir hlutir sem við getum ekki keypt með peningum, eru dýrmætustu verðmætin. Ég get sagt nokkuð sátt að ég er hamingjusöm að eignast ekki rauða bjöllu, fyrir utan að ég myndi örugglega lenda í árekstri á henni innan nokkra daga að þá væri ég eflaust aldrei hamingjusöm með það að eiga hana því ég vann svo sannarlega ekki allt árið til þess að spara og eiga fyrir henni!
Tilhugsunin að vinna í lottóinu er alveg góð, hverjum vantar ekki smá pening í veskið sitt, en sannleikurinn er sá að ég er hamingjusöm með allt það sem ég á, þrátt fyrir að vera ekki manneskja með háar tekjur og næ stundum ekki endum saman, að þá er það litla sem maður á það besta sem maður hefur, þótt innkoman er lítil verður allt sem keypt er fyrir hana mikið.
Draumurinn um stærri íbúð er....draumur! Að sjálfsögðu yrði það nokkuð notalegt að eiga herbergi fyrir sig, að þurfa ekki að taka tilhlaup uppí rúm á kvöldin svo maður lendi ekki á einum ósýnilegum legokubb!, hljómar rosalega vel, að geta innréttað barnaherbergi í sætum stíl, gefið Oliver flottann Cars borða á veggina, sitt pláss til að leika sér án þess að þurfa vera í kringum allt mitt dót og mína pappíra (sem honum finnst samt voða gaman að gramsa í!) en svo kom upp sú staðreynd að ég held....hann vill ekki sérherbergi endilega, því í hvert skipti sem ég tek ólympíuleikana á þetta og lendi næstum því heil uppí rúmi þá er hann svo fljótur að hjúfra sig alveg uppað mér og skella hendini beint yfir bringu mína og byrjar að hrjóta. 

Eiginmanns talið er auðvitað algjör fásinna, ég myndi aldrei höndla það í þessu jarðlífi að eignast fullkomin eiginmann, sem myndi nenna hlusta á kvabbið í mér útaf því hann er svo góður, sem lokar klósettsetuni í hvert skipti, sem er alltaf sammála mér, opnar bílhurðina eins og herramaður, nennir að nudda mig hver einustu kvöld, velja alltaf stelpumyndir á videokvöldum.....ég myndi fljótt gefast uppá því, eflaust ósköp skiljanlegt ef hann er að reyna heilla mann uppúr skónum og jú viðurkenni að það er nauðsynlegt að rjúfa ekki prumpumúrinn strax en til lengri tíma þá er það ekki með felldu. Við getum ekki ætlast til af öðrum að vera fullkomin, gera hluti sem við getum ekki gert eða hreinlega nennum því ekki, raunin er sú að það er ekkert fullkomið og ef við reynum í sífellu að sækjast eftir fullkomnun, þá verðum við fyrir vonbrigðum. 


Hef alltaf sagt í gegnum árin að hamingjan er eins og eitt stórt bútasaumsteppi, hver bútur er eitt markmið, eitt bros eða hreinlega góður draumur. Því meira sem við lítum á litlu hlutina í lífinu og njótum augnabliksins að þá munum við finna hamingjuna í lífi okkar, ósvikna hamingju en ekki einhver "sértilboð núna í dag!" gleði sem gufar upp áður en sólin nær að setjast fyrir nýjan morgun.

Það hefur ávallt virkað fyrir mig að hugsa um alla þá hluti sem peningar geta ekki keypt á þeim stundum sem mér finnst ég vera svo fátæk.
Ég er hamingjusöm í dag en ekki eftir að ég er búin að eignast draumabílinn,fá launahækkun,eignast stærri íbúð, búin að gifta mig..... ég er einfaldlega hamingjusöm í dag!